Winter Wonderland & Ísland Winner um helgina!
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Þá er komið að síðustu sýningu ársins – Winter Wonderland & Ísland Winner sýningunni! Sýningin verður haldin í reiðhöll Spretts í Kópavogi og er norðurlandasýning. Skráðir á sýninguna eru rúmlega 1050 hundar ásamt 28 ungum sýnendum. Það styttist heldur betur í jólahátíðina og verður að sjálfsögðu aftur jólapeysu þema á sýningunni, líkt og í fyrra, hvetjum alla til að mæta í jólalegum klæðnaði og skapa skemmtilega stemmingu.
Dæmt verður í 7 sýningahringjum samtímis báða dagana og hefjast allir dómhringir kl. 9:00. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 14:45 báða daga. Gera má ráð fyrir að þau standi til u.þ.b. kl. 17.
Í lok dags á sunnudaginn verður athöfn þar sem heiðraðir verða stigahæstu fjórir hundar, öldungar, ræktendur og ungir sýnendur ársins. Við hvetjum félagsmenn að staldra við eftir að úrslitum er lokið og taka þátt í að skála og fagna árangri ársins.
FRÍTT er inn á sýninguna í boði ACANA og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Vekjum athygli að ekki er tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.
Dómarar helgarinnar verða: Anna Guðjónsdóttir (Ísland), Ásta María Guðbergsdóttir (Ísland), Bo Skalin (Svíþjóð), Elina Haapaniemi (Finnland), Jan Herngren (Svíþjóð), Mats Jonsson (Svíþjóð), Sóley Halla Möller (Ísland) og Veli-Pekka Kumpumäki (Finnland).
Dómari í keppni ungra sýnenda verður Tammie Sommerson-Wilcox frá Bandaríkjunum og áætlað að keppnin hefjist kl. 12:00 í hring 3.
Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim.
Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Erna S. Ómarsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!
Grænt: Venjuleg bílastæði
Gult: Bannað að leggja fyrir framan rúllur eða loka aðgengi að þeim
Rautt: STRANGLEGA BANNAÐ að leggja, um er að ræða reiðstíga!
Bílar sem eru lagðir þannig að þeir loki aðgengi eða reiðstígum verða dregnir í burtu á kostnað eiganda.