Foreldragreining með DNA - Staðfesting á uppruna

Stjórn hefur gefið út hverjar eru viðurkenndar
rannsóknarstofur vegna DNA greininga þegar staðfesta
á ætterni eða uppruna, stundum kallað foreldragreiningar.

MATÍS er viðurkennd rannsóknarstofa.​

Reglur félagsins sem fram koma í Reglum um skráningu
í ættbók varðandi DNA próf eru eftirfarandi: 

9. Reglur um DNA próf:
1. Sýni, hvort sem um ræðir blóð, stroku- eða annars konar sýni, skulu tekin af dýralækni.
2. Þegar DNA sýni eru tekin er gerð krafa um að varanlegt auðkenni (örmerki eða
tatto) hundsins sé skoðað og staðfest af þeim dýralækni sem tekur sýnið.
Auðkenni þarf einnig að koma fram á niðurstöðuvottorði frá rannsóknarstofu.
3. Stjórn HRFÍ getur gefið út lista yfir viðurkenndar rannsóknarstofur.

Þá er það áréttað að sýni skuli berast beint frá dýralækni til Matís til
greiningar í samræmi við vinnulag.