Sjálfboðaliðar fyrir Septembersýningu
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Kæru deildir, félagsmenn og áhugamenn
Þá líður að septembersýningu félagsins og er undirbúningur í fullum gangi. Sýningin verður að þessu sinni sett upp föstudaginn 25. september í Reiðhöllinni í Víðidal og er áætlað að byrja uppsetningu kl. 10:30 til að klára hana áður en ungir sýnendur hefjast. Við gerum okkur grein fyrir því að uppsetning skarast á við vinnutíma hjá mörgum, en við vonumst til að einhverjir vaskir sjálfboðaliðar sjái sér fært um að mæta.
Sjálfboðaliðar sem eru að sýna á laugardegi mega koma inn með dót að uppsetningu lokinni, fyrir aðra opnar svæðið kl 08:00 á laugardagsmorgni.
Þegar sýningu lýkur á sunnudag bíður okkur skemmtilegt verkefni að taka niður sýninguna og væri frábært að fá sjálfboðaliða til að aðstoða okkur með það. Áætlað er að niðurtaka sé að byrja um 17:00
Hægt er að skrá sig í skjalinu hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1qAzWvCSTMTPZjtqQRym6PPzllAalAu_0GfSKSEiaWlA/edit?usp=sharing
Annars vonum við að þið njótið sýningarinnar með okkur
Bestu kveðjur starfsfólk skrifstofuÁgústa Pétursdóttir