Alþjóðleg sýning HRFÍ 26. - 27. september

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Þá nálgast haustsýning HRFÍ, en hún fer fram 25.-27. september n.k. í reiðhöll Fáks í Víðidal.

Skráning á sýninguna var með besta móti, tæplega 900 hundar eru skráðir til leiks og 45 ungir sýnendur. Dæmt verður í sex hringjum og hefjast dómar að venju kl. 9.

Athugið að breyting var gerð og ekki verður sérstök hvolpasýning föstudaginn 25.september.

Dómarar helgarinnar eru: Bertil Lundgren (Svíþjóð), Dagmar Klein (Rúmenía), Hannele Jokisilta (Finnland), Herdís Hallmarsdóttir (Ísland), Markku Mähönen (Finnland), Paula Rekiranta (Finnland)

Dómari fyrir keppni ungra sýnenda er Laura Lintenhofer frá Finnlandi. Keppni ungra sýnenda fer fram föstudaginn 25. september og hefst kl. 18:00. 24 ungmenni eru skráð í yngri flokki og 21 ungmenni eru skráð í eldri flokki. Keppni hefst á yngri flokki.

Hér að neðan má sjá dagskrá sýningar með hefðbundnum fyrirvara um villur og breytingar. Dagskrá úrslita og PM verður birt þegar nær dregur.

Dagskrá - Laugardagur 26. september Dagskrá - Sunnudagur 27. september