
Októbersýningin 3.-5. október - Upplýsingar
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Þá er komið að haustsýningu og við færum okkur aftur inn! Sýningin verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og er alþjóðlegsýning. Skráðir á sýninguna eru rúmlega 1.000 hundar ásamt 32 ungum sýnendum fyrir þrjá daga.
Dæmt verður í 6 sýningahringjum samtímis alla þrjá dagana. Á föstudag verður hvolpasýning og keppni ungra sýnenda, húsið opnar 17:30 og hefjast allir hringir kl. 18:30, úrslit áætluð um kl. 20:15. Á laugardag og sunnudag opnar húsið kl. 8:00 og hefjast allir dómhringir kl. 9:00. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 14:30 laugardag og sunnudag.
FRÍTT er inn á sýninguna í boði ACANA og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Vekjum athygli að ekki er tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.
Dómarar hvolpasýningarinnar eru: Markus Gisslén (Svíþjóð), José Homem de Mello (Portúgal), Pedro Sanches Delerue (Portúgal), Róbert Kotlár (Ungverjaland) og Theodóra Róbertsdóttir (Ísland). Mikael Nilsson (Svíþjóð) dæmir unga sýnendur.
Dómarar laugardags og sunnudags eru: György Tesics (Ungverjaland), Markus Gisslén (Svíþjóð), Mikael Nilsson (Svíþjóð), José Homem de Mello (Portúgal), Pedro Sanches Delerue (Portúgal) og Róbert Kotlár (Ungverjaland).
Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim. Við erum á glænýjum teppum og við viljum geta nýtt þau aftur svo höldum svæðinu okkar hreinu.
Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Anna Guðjónsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!