
Norðurljósasýningin um helgina!
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Þá er komið að fyrstu sýningu ársins – Norðurljósasýningunni! Sýningin verður haldin í reiðhöll Spretts í Kópavogi og er alþjóðlegsýning. Skráðir á sýninguna eru tæplega 1.100 hundar ásamt 26 ungum sýnendum.
Dæmt verður í 7 sýningahringjum samtímis báða dagana og hefjast allir dómhringir kl. 9:00. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 15:00 báða daga. Gera má ráð fyrir að þau standi til u.þ.b. kl. 17.
FRÍTT er inn á sýninguna í boði HAPPY DOG og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Vekjum athygli að ekki er tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.
Dómarar helgarinnar verða: Bojan Matakovic (Króatía), Eva Liljekvist Borg (Svíþjóð), Hans Almgren (Svíþjóð), Jarmo Hilpinen (Finnland), Jeff Horswell (Bretland), Jose Doval Sanchez (Spánn) og Lilja Dóra Halldórsdóttir (Ísland).
Dómari í keppni ungra sýnenda verður Jeff Horswell og fer keppni fram að loknum tegundadómum í hring 3 á sunnudag.
Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim.
Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Anna Guðjónsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!
Grænt: Venjuleg bílastæði
Gult: Bannað að leggja fyrir framan rúllur eða loka aðgengi að þeim
Rautt: STRANGLEGA BANNAÐ að leggja, um er að ræða reiðstíga!
Bílar sem eru lagðir þannig að þeir loki aðgengi eða reiðstígum verða dregnir í burtu á kostnað eiganda.