Norðurljósasýning 20.-22. febrúar - Upplýsingar fyrir helgina

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 2 min

Þá er komið að fyrstu sýningu ársins 2026 - Norðurljósasýningunni! Sýningin verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og er alþjóðleg sýning. Skráðir á sýninguna eru rúmlega 1.050 hundar ásamt 41 ungum sýnenda fyrir þrjá daga.

Dæmt verður í 6 sýningahringjum samtímis alla þrjá dagana. Á föstudag verður hvolpasýning og keppni ungra sýnenda, húsið opnar 17:30 og hefjast allir hringir kl. 18:00, úrslit áætluð um kl. 20:15. Á laugardag og sunnudag opnar húsið kl. 8:00 og hefjast allir dómhringir kl. 9:00. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 14:45 bæði laugardag og sunnudag

FRÍTT er inn á sýninguna í boði PLATINUM og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Vekjum athygli að ekki er tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.

Dómarar hvolpasýningarinnar eru: Anne Tove Strande (Noregur), Ágústa Pétursdóttir (Ísland), Erna Sigríður Ómarsdóttir (Ísland), Markku Kipinä (Finnland) og Per Kr. Andersen (Noregur). Emer Wright (Írland) dæmir unga sýnendur.

Dómarar laugardags og sunnudags eru: Anne Tove Strande (Noregur), Joel Lantz (Svíþjóð), Markku Kipinä (Finnland), Per Kr. Andersen (Noregur), Petra Junehall (Svíþjóð) og Svante Frisk (Svíþjóð).

Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is

Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim.

Stjórn félagsins og sýningastjórn minna á að ekki er leyfilegt að nota ólöglegan sýningarbúnað á sýningum HRFÍ. Borist hafa athugasemdir frá dýraverndarfélögum um að félagsmenn notist enn við slíkan búnað og geta sýnendur átt von á stikkprufum á komandi sýningum þar sem hringstjóri eða annar starfsmaður sýningar fær heimild til þess að skoða sérstaklega sýningatauma/ólar sem mætt er með í hring og hefur heimild til þess að vísa sýnanda úr hring sé búnaðurinn talinn ólögmætur.

Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:

  • STANGLEGA BANNAÐ er að vera með hunda á reiðstígum ásamt því að leggja á reiðstígum eða við hesthúsin í hverfinu, þetta á einnig við um reiðstíginn sem liggur fyrir neðan höllina, næg bílastæði eru í kringum höllina og nóg pláss til að viðra hundana, ásamt pissusvæði innan dyra við inngang.
  • Hundur sem sýndur er á sýningum HRFÍ skal vera bólusettur gegn þeim smitsjúkdómum sem leyfilegt er að bólusetja gegn hér á landi og varanlega auðkenndur með örmerki eða húðflúri. 
  • Hvetjum þá sem ekki þurfa að halda í hunda að nýta sér stúkuna til að þrengja ekki um of á gólfinu – stúkan er upphækkuð og sést vel yfir hringina.
  • Vinsamlegast keyrum hægt í hesthúsahverfinu - mikið var um of hraðan akstur á svæðinu á öðrum sýningum félagsins
  • Hundar eiga ekki heima upp í stúku eða þar sem veitingasala er.
  • Hundur á sýningasvæði skal vera í stuttum taumi og tryggt að hundur sé ávallt undir stjórn ábyrgðaraðila hans. Hundar mega ekki vera í útdraganlegum taumi (eins og t.d. flexi taumi).
  • Þeir sýnendur sem eru með SNYRTIBORÐ með sér þurfa að vera með undirbreiðslu undir borðið. Til dæmis má nota teppi, handklæði eða plastundirbreiðslu.
  • Hirða þarf upp eftir hundinn INNI OG ÚTI og þrífa með þess tilgerðum áhöldum. Pokar, sótthreinsisprey og pappír er sem fyrr að finna m.a. á borðum við hringi. Við hvetjum fólk til þess að tryggja það að ræsta hundana ÁÐUR en komið er inn í höll og benda öðrum þátttakendum á að hirða upp eftir sína hunda fari það fram hjá þeim.
  • Haldið svæðinu í kringum ykkur hreinu. Með samstilltu átaki getum við sýnt og sannað að við getum verið til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni en vitað er að það er ein helsta gagnrýni á hundahald. Okkur langar ekkert að vera úti í kulda og frosti á haust og vetrarsýningu.
  • Veitingasala Æskulýðsnefndar verður á staðnum frá kl. 9-16 ásamt því að rósettusalan verður staðsett í anddyrinu á langhlið hallarinnar (rétt hjá sjoppu og básum). Vekjum athygli að ekki verður tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.

Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Anna Guðjónsdóttir.

Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!