Norðurljósasýning 20.-22. febrúar - Dagskrá
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Þá styttist í fyrstu sýningu ársins, Norðurljósasýninguna, en hún fer fram 20.-22. febrúar í reiðhöll Fáks í Víðidal.
Skráning á sýningarnar er með besta móti, en 195 hvolpar auk 41 ungra sýnenda eru skráð á hvolpasýninguna 20. febrúar og yfir helgina eru skráðir um 860 hundar á Norðurljósasýninguna. Hvolpasýningin hefst kl. 18:00 og dómar laugardag og sunnudag hefjast að venju kl. 9:00.
Dómarar hvolpasýningarinnar eru: Anne Tove Strande (Noregur), Ágústa Pétursdóttir (Ísland), Erna Sigríður Ómarsdóttir (Ísland), Markku Kipinä (Finnland) og Per Kr. Andersen (Noregur). Emer Wright (Írland) dæmir unga sýnendur.
Dómarar laugardags og sunnudags eru: Anne Tove Strande (Noregur), Joel Lantz (Svíþjóð), Markku Kipinä (Finnland), Per Kr. Andersen (Noregur), Petra Junehall (Svíþjóð) og Svante Frisk (Svíþjóð).
Hér að neðan má sjá dagskrá sýningar, PM og dagskrá úrslita með hefðbundnum fyrirvara um villur og breytingar.
| Dagskrá hvolpasýningar 20. febrúar | PM hvolpasýningar 20. febrúar |
| Dagskrá laugardags 21. febrúar | PM Norðurljósasýningar 21.-22. febrúar |
| Dagskrá sunnudags 22. febrúar | Dagskrá úrslita 20.-22. febrúar |