Frambjóðendur til stjórnarsetu HRFÍ starfsárið 2025-2026

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Á næsta aðalfundi félagsins verður kosið um formann, tvo aðila í aðalstjórn félagsins til tveggja ára og einn aðila sem varamann félagsins til tveggja ára. Framboðsfrestur rann út í gær, sunnudaginn 30. mars 2025, og bárust eftirfarandi framboð innan tilskilins framboðsfrests:

Sæti formanns:

Erna Sigríður Ómarsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Sigurður Valdimar Steinþórsson

Aðalstjórn til tveggja ára:

Anna María Gunnarsdóttir
Klara Símonardóttir
Sigurður Valdimar Steinþórsson

Varastjórn til tveggja ára:

María Björg Tamimi
Sigurður Valdimar Steinþórsson

Kynning á frambjóðendum verður birt eigi síðar en 10. apríl n.k. Upplýsingar um fyrirkomulag kosninga voru kynntar samhliða auglýsingu um aðalfund hér á heimasíðu félagsins þann 27. mars síðast liðinn.