Winter Wonderland & Ísland Winner sýning 23.-24. nóvember

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Þá er komið að loka sýningu ársins 2024! Winter Wonderland & Ísland Winner sýningin okkar er framundan en hún fer fram dagana 23.-24. nóvember og verður haldin í reiðhöll Spretts í Kópavogi. Sýningin er Norðurlandasýning, Crufts Qualification 2025 og Ísland Winner sýning. Áætlað er að tegundahópar 1, 2, 3, 5 og 6 verði sýndir á laugardag ásamt keppni ungra sýnenda og tegundahópar 4, 7, 8, 9 og 10 á sunnudag .

Dómarar helgarinnar verða: Anna Guðjónsdóttir (Ísland), Bo Skalin (Svíþjóð), Elina Haapaniemi (Finnland), Jan Herngren (Svíþjóð), Mats Jonsson (Svíþjóð), Sóley Halla Möller (Ísland) og Veli-Pekka Kumpumäki (Finnland)

​Gjaldskrá 1: mánudagurinn 14. október kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 28. október kl. 15:00

Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð utan vinnutíma. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.

Athugið að hámarksfjöldi skráninga á sýninguna er 1.150 skráningar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests og hvetjum við fólk til að vera fyrr en seinna að skrá vilji það tryggja sér skráningu.

Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 14. OKTÓBER til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15, og föstudaga frá kl. 10-13. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.

Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR