Sumarsýningar HRFÍ 13.-14. júní

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Nú fer vonandi að vora bráðum og líða að sumri! Fyrri tvöfalda sumar helgin fer fram dagana 13. og 14. júní og verður haldin í hjarta Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni. Laugardag verður NKU Norðurlandasýning & Reykjavík Winner og sunnudag verður alþjóðleg CACIB sýning.

Athugið að boðið verður upp á keppni ungra sýnenda bæði á laugardag og sunnudag.

Dómarar helgarinnar verða: Anette Edlander (Svíþjóð), Annette Bystrup (Danmörk), Anna Friberg (Svíþjóð), Daníel Örn Hinriksson (Ísland), Francesco Di Paola Nuzzo (Ítalía), Helin Tenson (Finnland), Marco Marabotto (Ítalía), Maritha Östlund-Holmsten (Svíþjóð), Paolo Tartaro (Ítalía), Tino Jalonen (Finnland), Tomas Rohlin (Danmörk), Trond Are Karlsen (Noregur)

Gjaldskrá 1: mánudagurinn 4. maí kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 18. maí kl. 15:00

Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð utan vinnutíma. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.

Athugið að hámarksfjöldi skráninga á hvora sýningu fyrir sig er 1.000 skráningar (hundar og ungir sýnendur) og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests og hvetjum við fólk til að vera fyrr en seinna að skrá vilji það tryggja sér skráningu.

Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 4. MAÍ til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15, og föstudaga frá kl. 10-13. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.

Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR