Haustsýning 25.-27. september - Upplýsingar fyrir helgina
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Þá er komið að haustsýningu félagsins! Sýningin verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og er alþjóðleg sýning. Skráðir á sýninguna eru um 900 hundar ásamt 45 ungum sýnendum.
Dæmt verður í 6 sýningahringjum samtímis alla laugardag og sunnudag. Á föstudag verður keppni ungra sýnenda, húsið opnar 17:00 og hefst keppni ungra sýnenda kl. 18:00 á yngri flokki. Í yngri flokk eru skráð 24 ungmenni og í eldri 21. Á laugardag og sunnudag opnar húsið kl. 8:00 og hefjast allir dómhringir kl. 9:00. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 14:30 bæði laugardag og sunnudag
FRÍTT er inn á sýninguna í boði ACANA og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Vekjum athygli að ekki er tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.

Dómarar helgarinnar eru: Bertil Lundgren (Svíþjóð), Dagmar Klein (Rúmenía), Hannele Jokisilta (Finnland), Herdís Hallmarsdóttir (Ísland), Markku Mähönen (Finnland) og Paula Rekiranta (Finnland)
Dómari keppni ungra sýnenda er Laura Lintenhofer frá Finnlandi.
Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim.
Stjórn félagsins og sýningastjórn minna á að ekki er leyfilegt að nota ólöglegan sýningarbúnað á sýningum HRFÍ. Borist hafa athugasemdir frá dýraverndarfélögum um að félagsmenn notist enn við slíkan búnað og geta sýnendur átt von á stikkprufum á komandi sýningum þar sem hringstjóri eða annar starfsmaður sýningar fær heimild til þess að skoða sérstaklega sýningatauma/ólar sem mætt er með í hring og hefur heimild til þess að vísa sýnanda úr hring sé búnaðurinn talinn ólögmætur.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Svava Arnórsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!