Winter Wonderland sýning 27.-29. nóvember

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 2 min

Þá er komið að loka sýningu félagsins í ár en það er Winter Wonderland sýningin sem fer fram 27.-29. nóvember og verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal, Reykjavík. Sýningin er NKU Nordic sýning. Áætlað er að tegundahópar 2, 4, 6, 7 og 9 verði sýndir á laugardag og tegundahópar 1, 3, 5, 8 og 10 á sunnudag.

Nú verður sýningin þannig sett upp að keppni ungra sýnenda fer fram á föstudegi, 27. nóvember. En hvolparnir verða sýndir með fullorðnu hundunum laugardag og sunnudag. Ungir sýnendur skrá sig því á viðburðinn sem er 27. nóvember og hundarnir á 28.-29. nóvember. Þeir hvolpar sem hafa nú þegar verið skráðir á hvolpasýningu 27. nóvember verða sjálfkrafa færðir yfir og þarf ekki að skrá þá aftur. Ef skráning fer fram úr björtustu vonum verða hvolpar færðir yfir á föstudag til að rýmka fyrir skráningu. ATH hvolpar og hundar þurfa að vera fullbólusettir samkvæmt sýningareglum.

Dómarar helgarinnar verða: Nina Karlsdotter (Svíþjóð), Patric Ragnarson (Svíþjóð), Paula Heikkinen-Lehkonen (Finnland), Pirjo Aaltonen (Finnland), Róbert Kotlár (Ungverjaland), Sóley Halla Möller (Ísland)

Gjaldskrá 1: mánudagurinn 19. október kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 2. nóvember kl. 15:00

Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð utan vinnutíma. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.

Athugið að hámarksfjöldi skráninga á sýninguna 28.-29. nóvember er 1000 skráningar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests og hvetjum við fólk til að vera fyrr en seinna að skrá vilji það tryggja sér skráningu.

Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 19. OKTÓBER til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15, og föstudaga frá kl. 10-13. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.

Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR