
Páskahvolpasýning HRFÍ og Acana
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Þá er komið að hvolpasýningu! Páskahvolpasýning fyrir allar tegundir í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ verður haldin laugardaginn 12. apríl í reiðhöll Fáks í Víðidal.
Sýningin er fyrir hvolpa á aldrinum 3-9 mánaða og keppt verður í tveimur flokkum: 3-6 mánaða og 6-9 mánaða.
Allir hvolpar fá skriflega umsögn ásamt því að bestu hvolpar tegundar og sýningar fá fallega rósettu.
Skráning er opin og fer fram í gegnum www.hundavefur.is. Skráningu lýkur fimmtudaginn 3. apríl kl. 15.00. Skráning kostar 3.900 kr.
Sýningin er skemmtileg æfing fyrir hvolpa, sýnendur og dómara! Vonumst til að sjá sem flesta!