Páskahvolpasýning 12. apríl - Upplýsingar og dagskrá
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Hvolpasýning HRFÍ í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ fer fram næsta sunnudag, 12. apríl, í reiðhöll Fáks í Víðidal. Húsið opnar kl. 10:30, sýningin hefst kl. 11 og eru 115 hvolpar skráðir. Dæmt verður í fjórum hringjum samtímis og dómarar eru Anna Guðjónsdóttir, María Björg Tamimi, Viktoría Jensdóttir og Þórdís María Hafsteinsdóttir. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 13:30. Við bendum á að sýningin er í reiðhöll og gólfið er ekki teppalagt.
Frítt er inn á sýninguna í boði Acana.

Allir hvolpar fá skriflega umsögn og bestu hvolpar sýningar fá vegleg verðlaun frá Acana.
Dagskrá sýningar má sjá hér að neðan og niðurstöður sýningarinnar verða inn á Hundavef.is líkt og aðrar sýningar. Sýninganúmer ættu að vera að detta inn í pósthólf þeirra sem skráðu á næstu mínútum.
Dagskrá hvolpasýningar 12. apríl
PM dagskrá hvolpasýningar
Munum að ganga vel um svæðið og hirða upp eftir hundana okkar. Hlökkum til að sjá ykkur!