Páskahvolpasýning - 12. apríl

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Þá er komið að hvolpasýningu! Páskahvolpasýning fyrir allar tegundir í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ verður haldin sunnudaginn 12. apríl í reiðhöll Fáks í Víðidal.

Sýningin er fyrir hvolpa á aldrinum 4-9 mánaða og keppt verður í tveimur flokkum: 4-6 mánaða og 6-9 mánaða. 

Allir hvolpar fá skriflega umsögn ásamt því að bestu hvolpar tegundar og sýningar fá fallega rósettu.

Skráning er opin og fer fram í gegnum www.hundavefur.isSkráningu lýkur fimmtudaginn 2. apríl kl. 15.00. Skráning kostar 3.900 kr.

Sýningin er skemmtileg æfing fyrir hvolpa, sýnendur og dómara! Vonumst til að sjá sem flesta!