Opið fyrir skráningu í augnskoðun 12.-14. febrúar 2026

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Opnað hefur verið fyrir skráningu í fyrstu augnskoðun næsta árs sem fer fram dagana 12.-14. febrúar á Melabraut 17, 220 Hafnarfirði. Jens Kai Knudsen og Maria Runue frá Danmörku munu skoða í þessari skoðun.

Bókanir í augnskoðun fara í eingöngu í gegnum Hundavef, ekki er tekið við skráningum á skrifstofu. Í skráningunni sér fólk hvaða tímar eru lausir og bókar hund í ákveðinn tíma. Greitt er fyrir tímann við bókun í gegnum Hundavef, ekki er tekið við millifærslum og er skráning í augnskoðun ekki staðfest fyrr en búið er að klára greiðslu. Augnskoðun kostar 12.100 kr. fyrir virka félagsmenn, en 28.800 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Athugið, takmarkað pláss er í boði í hverja skoðun. Ekki er hægt að breyta bókun nema hafa samband við skrifstofu, ekki verður hægt að breyta tímum eða fá endurgreitt eftir 5. febrúar. Ekki fæst endurgreitt ef ekki er mætt í bókaðan tíma. Lokað verður fyrir skráningu viku fyrir skoðun, eða fyrr ef tímar verða uppbókaðir. 

Hér má finna leiðbeiningar hvernig skráning fer fram í gegnum Hundavef: Leiðbeiningar við skráningu í augnskoðun

Takmarkað pláss er í augnskoðunina og lokar skráning 5. febrúar, eða fyrr ef öll pláss fyllast.