Norðurljósasýning um helgina!
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Þá er komið að fyrstu sýningu ársins - Norðurljósa sýningunni! Sýningin verður haldin nú um helgina, 2.-3. mars, í Samskipahöll Sprettara í Kópavogi. Á sýninguna eru skráðir 1.101 hundur ásamt 26 ungum sýnendum.
Allir dómhringir byrja að venju kl. 9.00 báða daga og áætlað er að úrslit hefjist kl. 15.15 á laugardag og 15.30 á sunnudag. Á laugardag fer keppni ungra sýnenda fram í hring 3 og hefst sú keppni að loknum tegundadómi í hringnum, áætlað er að það sé um kl. 13.00.
FRÍTT er inn á sýninguna í boði HAPPY DOG og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað meðan sýningunni stendur eins og venjulega. Vekjum athygli að ekki verður tekið við seðlum í rósettusölunni, einungis kortum.
Dómarar helgarinnar verða Annukka Paloheimo (Finnland), Diane Ritchie Stewart (Írland), Einar Paulsen (Danmörk), Inga Siil (Eistland), Katharina Round (Frakkland), Leni Finne (Finnland) og Liz-Beth Liljeqvist (Svíþjóð). Dómari í keppni ungra sýnenda verður Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Hér er hægt að sjá dagskrá, PM og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að taka upp rusl eftir sig og nýta sér ruslafötur á svæðinu, nóg er af þeim.
Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
Nokkrir punktar sem fara skal yfir fyrir helgina:
Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Anna Guðjónsdóttir.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel!
Grænt: Venjuleg bílastæði
Gult: Bannað að leggja fyrir framan rúllur eða loka aðgengi að þeim
Rautt: STRANGLEGA BANNAÐ að leggja, um er að ræða reiðstíga!
Bílar sem eru lagðir þannig að þeir loki aðgengi eða reiðstígum verða dregnir í burtu á kostnað eiganda.