Sjálfboðaliðar í uppsetningu og niðurtöku

Written by: Ágústa Pétursdóttir

|

|

Time to read 0 min

Kæru deildir, félagsmenn og áhugamenn

Þá líður að Nóvembersýningu félagsins og er undirbúningur í fullum gangi. Sýningin verður að þessu sinni sett upp föstudaginn 27. nóvember í Reiðhöllinni í Víðidal og er áætlað að byrja uppsetningu kl. 11:00  til að klára hana áður en ungir sýnendur hefjast. Við gerum okkur grein fyrir því að uppsetning skarast á við vinnutíma hjá mörgum, en við vonumst til að einhverjir vaskir sjálfboðaliðar sjái sér fært um að mæta.

Sjálfboðaliðar sem eru að sýna á laugardegi mega koma inn með dót að uppsetningu lokinni, ekki er leyfilegt að koma með búr fyrir aðra eða skilja eftir búr og borð á föstudagskvöldinu eftir unga sýnendur.  

Þegar sýningu lýkur á sunnudag bíður okkur skemmtilegt verkefni að taka niður sýninguna og væri frábært að fá sjálfboðaliða til að aðstoða okkur með það. Áætlað er að niðurtaka sé að byrja um 17:00

Hægt er að skrá sig í skjalinu hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1_uwD7evG4ght2NZHAXwxMonCVv_HwA1wvY8SDGZUvwA/edit?usp=sharing 

Annars vonum við að þið njótið sýningarinnar með okkur

Bestu kveðjur starfsfólk skrifstofu