Norðurljósasýning 2.-3. mars

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Nú fer sýningaárið að hefjast! Fyrsta stóra sýningin verður Norðurljósasýningin sem fer fram dagana 2.-3. mars í Samskipahöll Sprettara í Kópavogi. Á laugardag eru áætlaðir tegundahópar 1, 4, 5, 8 og 10 ásamt keppni ungra sýnenda en á sunnudag eru áætlaðir tegundahópar 2, 3, 6, 7 og 9. Dómarar helgarinnar verða: Annukka Paloheimo (Finland), Diane Ritchie Stewart (Írland), Einar Paulsen (Danmörk), Inga Siil (Eistland), Katharina Round (Frakkland), Leni Finne (Finnland) og Liz-Beth Liljeqvist (Svíþjóð).

Skráning er hafin á Hundavef og lýkur fyrri skráningarfresti þann 22. janúar kl. 15:00 og lokast alfarið fyrir skráningu þann 5. febrúar kl. 15:00, eða fyrr ef fyllist á sýninguna.
Gjaldskrá 1: mánudagurinn 22. janúar, kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 5. febrúar, kl. 15:00

Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð utan vinnutíma. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.

Athugið að hámarksfjöldi skráninga er 1150 skráningar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests.

Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 22. JANÚAR til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15, og föstudaga frá kl. 10-13. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.

Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR