Júní sumarsýningar HRFÍ 13.-14. júní - Upplýsingar
|
|
Time to read 3 min
|
|
Time to read 3 min
Nú um helgina, 13.-14. júní, verður fyrri útisýningar helgi sumarsins haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Skráning á sýningarnar var með besta móti, eða tæplega 950 hundar hvorn dag og 33 ungir sýnendur. Dæmt verður í 12 sýningahringjum samtímis og hefjast allir dómhringir kl. 9:00 báða daga, nema keppni ungra sýnenda hún hefst kl. 12:00 í stóra hringnum. Áætlað er að hefja forval/forkeppni kl. 14:50 og úrslitin sjálf hefjist kl. 15:15 báða daga, ath. að hvolpa úrslit hefjast þó forval sé enn í gangi. Gera má ráð fyrir að úrslit standi til u.þ.b. kl. 17:30.
FRÍTT er inn á sýninguna í boði EUKANUBA og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Ýmsir sölu- og kynningabásar verða einnig á svæðinu ásamt matarvögnum.
![]()
Því miður þurftu tveir dómarar að boða forföll vegna óviðráðanlegra aðstæðna fyrir sýninguna, þau Francesco Di Paola Nuzzo og Maritha Östlund-Holmsten, en í þeirra stað hafa stigið inn Erna Sigríður Ómarsdóttir og Vytautas Baranauskas og færum við þeim kærar þakkir fyrir.
Dómarar helgarinnar eru því: Anette Edlander (Svíþjóð), Annette Bystrup (Danmörk), Anna Friberg (Svíþjóð), Daníel Örn Hinriksson (Ísland), Erna Sigríður Ómarsdóttir (Ísland), Helin Tenson (Finnland), Marco Marabotto (Ítalía), Paolo Tartaro (Ítalía), Tino Jalonen (Finnland), Tomas Rohlin (Danmörk), Trond Are Karlsen (Noregur) og Vytautas Baranauskas (Litháen).
Keppni ungra sýnenda verður bæði laugardag og sunnudag í úrslita hringnum og hefst keppni kl. 12 á yngri flokki. Dómari á laugardeginum verður Paavo Tervonen frá Finnlandi og á sunnudag dæmir Yiannis Vlachos frá Grikklandi. Samtals eru 16 keppendur í yngri flokki og 17 í eldri flokki, báða dagana.
Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.
Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is
VARÐANDI SÝNINGATJÖLD Á SVÆÐINU
Uppsetning sýningar fer fram á föstudeginum 12. júní kl. 12:00. Ekki verður heimilt að tjalda á túninu fyrr en uppsetningu er lokið og leyfi hefur verið veitt, það er áætlað kl. 15. ATH. ekki er hægt að leggja hjá kirkjunni 12. júní vegna jarðarfarar. Ekki er heimilt að keyra inn á túnið á föstudeginum, né um helgina. Búið verður að spreyja merkingar á túnið þar sem tjöld mega vera, en það er ca. 4 metra frá hringjum. Reglulega verður merkt X en þar myndast gangvegur og ekki heimilt að tjalda á X svæði né beint fyrir aftan það, það er gert til að tryggja aðgengi að hringjum. Vinsamlegast athugið að tjöld við sýningarhringi mega ekki vera stærri en 3m x 3m. Stærri tjöldum má tjalda fjarri sýningarhringjum. Vinsamlegast ekki tjalda of nálægt göngustígunum, það þurfa stórir bílar að geta keyrt stíganna alla helgina, tjöld sem eru of nálægt gæti þurft að fjarlægja ef þau eru fyrir. ATH! Ef tjöld eru á stöðum sem þau mega ekki vera á munu skipuleggjendur sýningarinnar fjarlægja tjöldin, svo vinsamlegast virðið teikninguna hér að neðan og merkingar á túninu.

Hægt að smella hér til að sjá myndina hér að ofan í betri upplausn.
Vinsamlegast skoðið myndina hér fyrir ofan hvar má tjalda. Skipulag svæðisins og hringja má sjá hér að ofan. Bendum á að myndin er ekki í réttum hlutföllum, en hún sýnir grófa yfirsýn á svæðinu. Ef ástand túnsins er þannig að þörf sé að færa til einstaka hringi verður það gert.
Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér ruslafötur á svæðinu.
Vinsamlega athugið að lausaganga hunda á svæðinu er stranglega bönnuð og skulu allir hundar vera í taumi og á eru þeir alfarið á ábyrgð eigenda sinna.
Stjórn félagsins og sýningastjórn minna á að ekki er leyfilegt að nota ólöglegan sýningarbúnað á sýningum HRFÍ. Borist hafa athugasemdir frá dýraverndarfélögum um að félagsmenn notist enn við slíkan búnað og geta sýnendur átt von á stikkprufum á komandi sýningum þar sem hringstjóri eða annar starfsmaður sýningar fær heimild til þess að skoða sérstaklega sýningatauma/ólar sem mætt er með í hring og hefur heimild til þess að vísa sýnanda úr hring sé búnaðurinn talinn ólögmætur.
BÍLASTÆÐAMÁL
Vinsamlegast ekki leggja bílum ólöglega, þeir verða dregnir í burtu og/eða sektaðir. EKKI er heimilt að leggja fyrir framan skátaheimilið (svæði F) bæði laugardag og sunnudag!
Sýningastjórar eru Anna Guðjónsdóttir, Ásta María Karlsdóttir, Lilja Dóra Halldórsdóttir og Óli Þór Árnason.
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel um helgina!


