Júní sumarsýningar HRFÍ 13.-14. júní - Dagskrá

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Þá nálgast fyrri helgi sumarsýninga HRFÍ, en þær fara fram 13.-14. júní á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.

Skráning á sýningarnar var með besta móti, tæplega 950 hundar og 33 ungir sýnendur á hvora sýningu. Dæmt verður í tólf hringjum á báðum sýningum og hefjast dómar að venju kl. 9.

Því miður forfallaðist Maritha Östlund-Holmsten vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og hefur Erna Sigríður Ómarsdóttir verið fengin til að stíga inn í dómarahópinn, þökkum henni fyrir að koma inn með skömmum fyrirvara.

Dómarar helgarinnar eru því: Anette Edlander (Svíþjóð), Annette Bystrup (Danmörk), Anna Friberg (Svíþjóð), Daníel Örn Hinriksson (Ísland), Erna Sigríður Ómarsdóttir (Ísland), Francesco Di Paola Nuzzo (Ítalía), Helin Tenson (Finnland), Marco Marabotto (Ítalía), Paolo Tartaro (Ítalía), Tino Jalonen (Finnland), Tomas Rohlin (Danmörk) og Trond Are Karlsen (Noregur).

Dómarar fyrir keppni ungra sýnenda verða: Paavo Tervonen (Finnland) og Yiannis Vlachos (Grikkland). Keppni ungra sýnenda fer fram í úrslita hringnum og áætlað að byrji kl. 12 á yngri flokki (16) og svo eldri flokkur (17) báða dagana (verður birt í dagskrá úrslita hrings).

Hér að neðan má sjá dagskrá sýningar með hefðbundnum fyrirvara um villur og breytingar vegna starfsfólks í hringjum. Því miður hefur gengið illa að manna sýningarnar og dagskrá að öllu leiti sett saman til að manna hringina svo hægt sé að halda sýningarnar. Dagskrá úrslita og PM verður birt þegar nær dregur.

Dagskrá - Laugardagur 13. júní Dagskrá - Sunnudagur 14. júní