
Hvolpasýning 12. apríl - Dagskrá og upplýsingar
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Hvolpasýning HRFÍ í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ fer fram næsta laugardag, 12. apríl, í reiðhöll Fáks í Víðidal. Húsið opnar kl. 9:30, sýningin hefst kl. 10 og eru rúmlega 180 hvolpar skráðir. Dæmt verður í fimm hringjum samtímis og dómarar eru Ágústa Pétursdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir, Herdís Hallmarsdóttir, Lilja Dóra Halldórsdóttir, Sóley Halla Möller og Theodóra Róbertsdóttir. Áætlað er að úrslit hefjist kl. 13:30. Við bendum á að sýningin er í reiðhöll og gólfið er ekki teppalagt.
Frítt er inn á sýninguna í boði Acana.
Allir hvolpar fá skriflega umsögn ásamt því að bestu hvolpar tegundar og sýningar fá fallega rósettu. Bestu hvolpar sýningar fá einnig vegleg verðlaun frá Acana.
Dagskrá sýningar má sjá hér að neðan og niðurstöður sýningarinnar verða inn á Hundavef.is líkt og aðrar sýningar. Sýninganúmer ættu að vera að detta inn í pósthólf þeirra sem skráðu á næstu mínútum.
Dagskrá hvolpasýningar 12. apríl
PM dagskrá hvolpasýningar
Munum að ganga vel um svæðið og hirða upp eftir hundana okkar. Hlökkum til að sjá ykkur!