Fundir með ráðuneytum

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Um miðjan maí fóru fulltrúar félagsins á fund með tveimur ráðuneytum, annars vegar félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og hins vegar atvinnuvegaráðuneytinu.

Á fundi með félags- og húsnæðismálaráðuneytinu var umræðuefnið frumvarp um breytingar á lögum um fjöleignarhús, í tengslum við gæludýrahald. Stjórn skilaði inn umsögn um frumvarpið þann 16. apríl sem lesa má hér. Fulltrúar félagsins tóku undir með ráðherra, Ingu Sæland, um mikilvægi þess að uppfæra lögin um fjöleignarhús. Við þurfum að færast nær því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum þar sem réttur eigenda gæludýra er almennt betur tryggður og dýrahald almennt heimilað nema fyrir liggi rökstuddar ástæður fyrir takmörkun þess. Fjölmargar rannsóknir sýni það að gæludýr hafi jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu eigenda sinna, en samvera hefur verið tengd við minni streitu, kvíða og þunglyndi. Ráðherra taldi miklar líkur að frumvarpið fengi samþykki á þingi, en frumvarpið er komið í umfjöllun inn á alþingi frá velferðarnefnd.  

Á fundi með atvinnuvegaráðuneytinu var umræðuefnið innflutningsmál gæludýra. Fulltrúar félagsins settu fram þá ítrekun að endurskoða þyrfti svokallaða cabin bannið, eða bannið við flutningi gæludýra í farþegarými. Að afturkalla þetta bann myndi auka svigrúm til muna í innflutningi gæludýra til landsins, en innflutningur til landsins hefur snarminnkað vegna takmarkaðra flugferða eftir að Icelandair hætti að bjóða upp á þjónustuna. Rekstrargrundvöllur einangrunarstöðvanna sem við þurfum á að halda til að innflutningur gangi upp er því ekki eins sterkur í dag og hann var. Fulltrúar ráðuneytisins voru sammála að staðan í dag væri ekki ásættanleg og myndi ekki ganga til lengri tíma. Vel var tekið í að endurskoða cabin bannið og ætlar ráðuneytið í það samtal strax að skerpa verkferla og annað sem snýr að flugvellinum. Félagið fagnar jákvæðu viðhorfi við endurskoðun cabin bannsins og mun ýta á eftir aðgerðum og svörum um framvindu málsins á næstu vikum.