Frú Guðrún Ragnars Guðjohnsen fyrrverandi formaður HRFÍ er fallin frá
|
|
Time to read 1 min
|
|
Time to read 1 min
Guðrún Guð, eins og hún var oftar en ekki kölluð af félagsmönnum HRFÍ, var formaður félagsins til margra ára og heiðursfélagi þess eftir að hún lét af formannsstörfum.
Guðrún vann mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsmanna og lagði mikilvægan grunn að öflugu starfi félagsins í dag. Hún barðist ötullega fyrir réttindum hundeigenda og stóð meðal annars í langri og strangri baráttu við Reykjavíkurborg um að hundahald yrði leyft í borginni og að hundaeftirlitsgjöld endurspegluðu sannanlegan kostnað borgarinnar. Hún hafði sigur í báðum þessum málum er urðu svo fordæmisgefandi um allt land.
Hún lét bætta meðferð og þjálfun hunda sig varða, hafði forgöngu um stofnun hundaskóla félagsins er hélt úti grunnnámskeiðum fyrir hundeigendur um áratuga skeið og barðist fyrir ábyrgara ræktunarstarfi og uppeldi hvolpa þar sem þroski, eðli og tjáningu hundsins var í forgrunni. Guðrúnarverðlaunin, sem veitt voru í fyrsta sinn árangursríkum og farsælum ræktendum innan HRFÍ árið 2025, bera nafn hennar.
Guðrún ræktaði íslenska fjárhundinn undir ræktunarnafninu „Íslands-Garða“ og var sýningadómari á kynið. Óhætt er að segja að varðveisla íslenska fjárhundsins og heilbrigði hans var hennar hjartans mál. Hún var ein af stofnendum ISIC samtakanna, samvinnuvettvang þjóða um ræktun hans, og bar hróður hans víða.
Guðrún á miklar þakkir skildar fyrir öll sín störf og það sem hún áorkaði fyrir hundamenningu á Íslandi, Hundaræktarfélag Íslands og íslenska fjárhundinn, þjóðarhundinn okkar. Fyrir hönd félagsmanna sendir stjórn Hundaræktarfélags Íslands fjölskyldu Guðrúnar innilegar samúðarkveðjur og minnist merkrar konu er skipar veigamikinn sess í sögu félagsins.
