Breyting á sýningarreglum félagsins - aldur yngri hvolpaflokks
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Á stjórnarfundi þann 20. janúar var lögð fram tillaga þess efnis að breyta aldri í yngri hvolpaflokki á sýningum. Ástæðan fyrir umræðunni er samræmi við þá þróun sem á sér stað á Norðurlöndunum, samtölum við dýravernarsamtök ásamt því að tryggja eins og hægt er að hvolpar séu fullbólusettir við komu á sýningar. Stjórn óskaði eftir umsögn sýningastjórnar sem studdi við þessa breytingu með sömu rökum og samþykkti því breyttar reglur á fundi 16. febrúar. Yngri hvolpaflokkur verður því fyrir hvolpa á aldrinum 4-6 mánaða í stað 3-6 mánaða frá og með 27. febrúar, og á það við allar sýningar, þ.m.t. hvolpasýningar og deildarsýningar.
Uppfærðar sýningareglur má finna hér.