Básar fyrir Nóvembersýningu

Written by: Ágústa Pétursdóttir

|

|

Time to read 0 min

Við höfum opnað fyrir umsóknir af sölu- og kynningarbásum fyrir Winter Wonderland sýninguna.

 Í boði eru þrjár stærðir af básum – en plássið er takmarkað, þannig að fyrstir koma, fyrstir fá.
 Deildir félagsins fá ókeypis kynningarbása til að kynna starfsemina sína.

Umsóknir og verðskrá má finna hér
Umsóknum skal skila á silja@hrfi.is fyrir 24.nóvember.

ATH. Þar sem þessi reiðhöll er minni en sú sem við höfum verið í, þurfa sölu- og kynningarbásar að ver frammi á svæði þar sem hundar mega ekki koma inn vegna veitingasölu. Deildir með kynningabása mega koma inn með hunda á básana, einnig er veitt undanþága á að koma inn með hunda sem þarf að máta vörur á sölubásum.

Ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara – tryggðu þér bás og taktu þátt í fjörinu!