Auglýst eftir félagsmönnum í starfshóp vegna trygginga gæludýra

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Kæru félagsmenn

Stjórn HRFI óskar eftir áhugasömum aðilum til setu í starfshópi um hundatryggingar. Starfshópnum er ætlað að skoða skilmála þeirra félaga sem bjóða hundatryggingar á Íslandi, bera saman við erlend félög og leggja mat á hvað betur mætti fara til þess að hagsmunir hundaeigenda séu sem best tryggðir. Áhugasamir sendi erindi á stjórn félagsins, stjorn@hrfi.is, með stuttri kynningu.