Ágústsýningar HRFÍ 8.-9. ágúst - Upplýsingar

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 2 min

Nú um helgina, 8.-9. ágúst, verður seinni útisýningar helgi sumarsins haldin á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Skráning á sýningarnar var með besta móti, eða tæplega 950 hundar hvorn dag og rúmlega 30 ungir sýnendur. Dæmt verður í 12 sýningahringjum samtímis og hefjast allir dómhringir  kl. 9:00 báða daga, nema keppni ungra sýnenda hún er áætluð að hefjast kl. 12:00 í stóra hringnum, eða um leið og þeir dómarar klára sinn tegundahring . Áætlað er að hefja forval/forkeppni kl. 15:05 og úrslitin sjálf hefjist kl. 15:30 báða daga, ath. að hvolpa úrslit hefjast þó forval sé enn í gangi. Gera má ráð fyrir að úrslit standi til u.þ.b. kl. 17:30.

FRÍTT er inn á sýninguna í boði EUKANUBA og er því engin miðasala á staðnum, rósettusalan verður á sínum stað að venju meðan sýningunni stendur. Ýmsir sölu- og kynningabásar verða einnig á svæðinu ásamt matarvögnum.

Dómarar helgarinnar eru því: Andrzej Szutkiewicz (Pólland), Henric Fryckstrand (Svíþjóð), Jakub Kruczek (Pólland), Katarzyna Szutkiewicz (Pólland), Leif-Herman Wilberg (Noregur), Maarit Hassinen (Finnland), Maija Mäkinen (Finnland), Michael Leonard (Írland), Per Lundström (Svíþjóð), Sean Carroll (Írland), Sjoerd Jobse (Svíþjóð), Svava Arnórsdóttir (Noregur)

Keppni ungra sýnenda verður bæði laugardag og sunnudag í úrslita hringnum og hefst keppni þegar dómarar keppninnar eru búnir að dæma sínar tegundir sem er áætlað kl. 12. Keppni hefst á yngri flokki. Dómari á laugardeginum verður Svava Arnórsdóttir og á sunnudag dæmir Henric Fryckstrand. 

Hér er hægt að sjá dagskrá sýningar, PM (dagskrá hringja) og dagskrá úrslita.

Úrslit, umsagnir og sýningaskrá má finna á hundavefur.is

 

VARÐANDI SÝNINGATJÖLD Á SVÆÐINU

Uppsetning sýningar fer fram á föstudeginum 7. ágúst kl. 12:00. Ekki verður heimilt að tjalda á túninu fyrr en uppsetningu er lokið og leyfi hefur verið veitt, það er áætlað kl. 15. Ekki er heimilt að keyra inn á túnið á föstudeginum, né um helgina. Búið verður að spreyja merkingar á túnið þar sem tjöld mega vera, en það er ca. 4 metra frá hringjum. Reglulega verður merkt X en þar myndast gangvegur og ekki heimilt að tjalda á X svæði né beint fyrir aftan það, það er gert til að tryggja aðgengi að hringjum. Vinsamlegast athugið að tjöld við sýningarhringi mega ekki vera stærri en 3m x 3m. Stærri tjöldum má tjalda fjarri sýningarhringjum. Vinsamlegast ekki tjalda of nálægt göngustígunum, það þurfa stórir bílar að geta keyrt stíganna alla helgina, tjöld sem eru of nálægt gæti þurft að fjarlægja ef þau eru fyrir. ATH! Ef tjöld eru á stöðum sem þau mega ekki vera á munu skipuleggjendur sýningarinnar fjarlægja tjöldin, svo vinsamlegast virðið teikninguna hér að neðan og merkingar á túninu.

Hægt að smella hér til að sjá myndina hér að ofan í betri upplausn.

Vinsamlegast skoðið myndina hér fyrir ofan hvar má tjalda. Skipulag svæðisins og hringja má sjá hér að ofan. Bendum á að myndin er ekki í réttum hlutföllum, en hún sýnir grófa yfirsýn á svæðinu. Ef ástand túnsins er þannig að þörf sé að færa til einstaka hringi verður það gert. 

Við minnum á að umgengni um svæðið þarf að vera til algjörrar fyrirmyndar og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér ruslafötur á svæðinu.

Vinsamlega athugið að lausaganga hunda á svæðinu er stranglega bönnuð og skulu allir hundar vera í taumi og á eru þeir alfarið á ábyrgð eigenda sinna.

Stjórn félagsins og sýningastjórn minna á að ekki er leyfilegt að nota ólöglegan sýningarbúnað á sýningum HRFÍ. Borist hafa athugasemdir frá dýraverndarfélögum um að félagsmenn notist enn við slíkan búnað og geta sýnendur átt von á stikkprufum á komandi sýningum þar sem hringstjóri eða annar starfsmaður sýningar fær heimild til þess að skoða sérstaklega sýningatauma/ólar sem mætt er með í hring og hefur heimild til þess að vísa sýnanda úr hring sé búnaðurinn talinn ólögmætur.

BÍLASTÆÐAMÁL

Vinsamlegast ekki leggja bílum ólöglega, þeir verða dregnir í burtu og/eða sektaðir. EKKI er heimilt að leggja fyrir framan skátaheimilið (svæði F) bæði laugardag og sunnudag! EKKI er heimilt að leggja fyrir framan kirkjuna á sunnudeginum (svæði C).

Sýningastjórar eru Ágústa Pétursdóttir og Herdís Hallmarsdóttir

Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur vel um helgina!