Ágúst sumarsýningar HRFÍ 8.-9. ágúst - Dagskrá
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Þá nálgast seinni helgi sumarsýninga HRFÍ, en þær fara fram 8.-9. ágúst á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.
Skráning á sýningarnar var með besta móti, tæplega 950 hundar báða daga og fyrir 30 ungir sýnendur. Dæmt verður í tólf hringjum á báðum sýningum og hefjast dómar að venju kl. 9.
Dómarar helgarinnar eru: Andrzej Szutkiewicz (Pólland), Henric Fryckstrand (Svíþjóð), Jakub Kruczek (Pólland), Katarzyna Szutkiewicz (Pólland), Leif Herman-Wilberg (Noregur), Maarit Hassinen (Finnland), Maija Mäkinen (Finnland), Michael Leonard (Írland), Per Lundström (Svíþjóð), Sean Carroll (Írland), Sjoerd Jobse (Svíþjóð) og Svava Arnórsdóttir (Noregur).
Dómarar fyrir keppni ungra sýnenda verða: Svava Arnórsdóttir á laugardag og Hernic Fryckstrand á sunnudag. Keppni ungra sýnenda fer fram í úrslita hringnum, keppnin hefst að loknum tegundadómum í hringjum dómara, sem er áætlað um kl. 12. Keppni hefst á yngri flokki báða dagana.
Hér að neðan má sjá dagskrá sýningar með hefðbundnum fyrirvara um villur og breytingar vegna starfsfólks í hringjum. Dagskrá sýningarinnar er að öllu leiti sett saman til að manna hringina svo hægt sé að halda sýningarnar. Dagskrá úrslita og PM verður birt þegar nær dregur.
| Dagskrá - Laugardagur 8. ágúst | Dagskrá - Sunnudagur 9. ágúst |