Aðstoð á Júní sýningu HRFÍ 8.-9. júní

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Kæru deildir, félagsmenn og áhugamenn

Þá líður að Júní sýningu félagsins og er undirbúningur í fullum gangi. Sýningin verður að þessu sinni sett upp föstudaginn 6.júní og er áætlað að byrja uppsetningu um 10. Við gerum okkur grein fyrir því að uppsetning skarast á við vinnutíma hjá mörgum, en við vonumst til að einhverjir vaskir sjálfboðaliðar sjái sér fært um að mæta.

Einnig vantar okkur sjálfboðaliða til að vakta bílastæði hjá Víðistaðakirkju á Laugardeginum milli 08:00-14:00 vegna skírnar. Þá vantar okkur einnig vaska aðila til að aðstoða okkur í rósettu sölu báða dagana.

Þegar sýningu lýkur á sunnudag bíður okkur skemmtilegt verkefni að taka niður sýninguna og væri frábært að fá sjálfboðaliða til að aðstoða okkur með það.

Hægt er að skrá sig í skjalinu hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1lOmlgN5LXuXbgqMru0duozvTWEWR5UyPjMkILLKMfxg/edit?usp=sharing

Annars vonum við að þið njótið sýningarinnar með okkur

Bestu kveðjur starfsfólk skrifstofu