Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands
|
|
Time to read 1 min
|
|
Time to read 1 min
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 27. maí 2026 í húsnæði félagsins, Melabraut 17, Hafnarfirði og hefst kl. 19:00
Dagskrá er sem hér segir:
1. Skipan fundarstjóra, fundarritara og lögmæti fundarins kannað.
2. Skýrsla stjórnar HRFÍ.
3. Ársreikningar félagsins ásamt skýrslu löggilts endurskoðanda fyrir síðastliðið ár, lagðir fram til staðfestingar.
4. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfstímabil.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning formanns og annarra stjórnarmanna skv. 9. gr. eða formaður kjörstjórnar kynnir niðurstöður rafrænna kosninga til formanns og annarra stjórnarmanna kosnum skv. 9. gr.
7. Kosning endurskoðanda félagsins
8. Kosning siðanefndar.
9. Önnur mál.
Kosningarétt og kjörgengi á fundinum hafa þeir sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir 2026, fyrir kl. 19:00, þann 20. maí 2026. Hægt er að greiða félagsgjald með millifærslu eða hafa samband við skrifstofu til að ganga frá greiðslu. Upplýsingar um reikningsnúmer má finna á heimasíðu félagsins www.hrfi.is.
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs tveggja aðalmanna og eins varamanns, allir til tveggja ára, rann út 30. mars 2026 og voru nöfn frambjóðenda tilkynnt á heimasíðu félagsins þann 31. mars 2026. Tvö framboð bárust fyrir tilskilin tíma í sæti í aðalstjórn og eitt í sæti varamanns.
Tillögur um lagabreytingar munu liggja frammi á skrifstofu og verða birtar á heimasíðu félagsins a.m.k. viku fyrir aðalfund.
Endurskoðaðir reikningar munu liggja frammi á skrifstofu félagsins fimm dögum fyrir aðalfund.
Erindi sem fundarmenn vilja bera undir fundinn undir liðnum önnur mál skulu vera skrifleg og hafa borist stjórn HRFÍ fimm dögum fyrir aðalfund. Slíkar tillögur um önnur mál liggja frammi á skrifstofu og á heimasíðu félagsins næsta virka dag eftir að þær berast.
Stjórn Hundaræktarfélags Íslands