Tilkynning vegna hvolpasýningar 25. september
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Vegna yfirstandandi bóluefnaskorts í landinu hefur sú ákvörðun verið tekin að breyta fyrirkomulagi næstu sýningar með velferð og öryggi hundanna að leiðarljósi.
Ákveðið hefur verið að fella niður hvolpaflokk 4–6 mánaða hvolpasýningu félagsins þann 25. september nk. Þátttökugjöld vegna skráninga í flokkinn verða endurgreidd.
Þá er ekki lengur þörf á sérstakri hvolpasýningu og verða hvolpar í eldri hvolpaflokki sýndir yfir helgina samhliða sýningu fullorðinna hunda.
Ástæða þessarar breytinga er sú að vegna bóluefnaskortsins hafa margir hvolpar í yngsta aldurshópnum ekki fengið nauðsynlegar bólusetningar. Sýningastjórn telur því ekki forsvaranlegt af hálfu félagsins að taka á móti þessum aldurshópi á sýninguna. Áhættan er einfaldlega of mikil og velferð og öryggi hundanna verður ávallt að vera í fyrirrúmi.
Keppni ungra sýnenda verður með óbreyttu sniði og fer fram föstudaginn 25. september kl. 18:00
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi breyting kann að valda og þökkum eigendum, ræktendum og sýnendum fyrir skilninginn.