Skráning í augnskoðun í febrúar opin

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Fyrsta augnskoðun ársins 2024 fer fram dagana 8.-10. febrúar á Melabraut 17, 220 Hafnarfirði. Jens Kai Knudsen og Susanne Mølgaard Kaarsholm frá Danmörku munu skoða í þessari skoðun. 

Nú verður tekið við skráningum í gegnum vefverslun HRFÍ þar sem skrá þarf inn upplýsingar um eiganda ásamt ættbókarnafni og númer hunds sem er verið að skrá. Í skráningunni sér fólk hvaða tímar eru lausir og hversu mörg pláss eru í hvern tíma. Greitt er fyrir tímann við bókun. Bókun í augnskoðun fer fram hér. Augnskoðun kostar 11.500 kr. fyrir virka félagsmenn. Athugið, takmarkað pláss er í boði í hverja skoðun.