Norðurljósasýning 20.-22. febrúar - Skráning hafin

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 1 min

Þá er komið nýtt ár og skráning hafin á fyrstu sýningu ársins! Norðurljósasýningin okkar er fyrst að venju og fer hún fram dagana 20.-22. febrúar. Sýningin verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal, Reykjavík, og er alþjóðleg sýning. Áætlað er að tegundahópar 6, 7, 8, 9 og 10 verði sýndir á laugardag og tegundahópar 1, 2, 3, 4 og 5 sunnudag. Hvolpar verða ekki sýndir á laugardag og sunnudag, heldur á föstudag ásamt keppni ungra sýnenda. Það skal því passa að skrá á réttan viðburð þegar skráð er á sýninguna. Hvolpar og ungir sýnendur skrá á hvolpasýninguna 20. febrúar, á meðan hundar 9 mánaða og eldri (ungliðaflokkur og uppúr) skrá á sýninguna 21.-22. febrúar. Sjá mynd hér að neðan. Ef fólk skráir á rangan viðburð þá kemur 0 kr. fram á kvittuninni.

Dómarar helgarinnar verða: Anne Tove Strande (Noregur), Joel Lantz (Svíþjóð), Markku Kipinä (Finnland), Per Kr. Andersen (Noregur), Petra Junehall (Svíþjóð) og Svante Frisk (Svíþjóð).

Gjaldskrá 1: mánudagurinn 12. janúar kl. 15:00
Gjaldskrá 2: mánudagurinn 26. janúar kl. 15:00

Ef fólki vantar tæknilega aðstoð er það hvatt til að skrá tímanlega, ekki er veitt tæknileg aðstoð utan vinnutíma. Ekki er veitt aðstoð við skráningu eftir að skráningafresti á sýninguna lýkur.

Athugið að hámarksfjöldi skráninga á sýninguna 21.-22. febrúar er 960 skráningar og lokar skráningakerfi sjálfkrafa þegar, og ef, þeim fjölda er náð. Það gæti því gerst fyrir tilgreindan lokatíma skráningarfrests og hvetjum við fólk til að vera fyrr en seinna að skrá vilji það tryggja sér skráningu.

Umsóknir um meistaratitla, ættbókarskráningar, eigendaskipti, umskráningar á erlendum ættbókum, þurfa að hafa borist félaginu ásamt öllum viðeigandi gögnum og greiðslu Í SÍÐASTA LAGI MÁNUDAGINN 12. JANÚAR til þess að tryggja að skráning náist.

Skráningar á sýningar HRFÍ fara fram í gegnum hundavefur.is. Skrifstofa HRFÍ er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-15, og föstudaga frá kl. 10-13. Ekki er tekið við skráningum sem berast eftir síðasta skráningardag.

Til þess að geta skráð þarf eigandi/eigendur hunds sem skráður er á sýningu HRFÍ að vera virkur félagsmaður, með greitt árgjald, í HRFÍ, eða félagi viðurkenndu af HRFÍ, það ár sem sýningin fer fram. Ef eigandi hefur ekki greitt félagsgjald skal hafa samband við skrifstofu HRFÍ til að ganga frá greiðslu á því áður en skráð er á sýningu. Hundar skráðir á sýninguna með íslenska eigendur skulu vera skráðir í HRFÍ. Aðrir hundar verða að vera skráðir hjá öðrum hundaræktunarfélögum samþykktum af FCI. Skráning og greiðsla þarf að hafa borist félaginu áður en síðasta skráningardegi lýkur.

Ekki er hægt að millifæra fyrir sýningagjöldum í vefskráningum og skráningar eru ekki teknar gildar ef greiðsla fylgir ekki.

Dómaraáætlun fyrir sýningar félagsins má nú nálgast HÉR