Hvolpasýning 27. október

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Þá er komið að hvolpasýningu! HRFÍ heldur hvolpasýningu fyrir allar tegundir í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ, sunnudaginn 27. október í reiðhöll Fáks í Víðidal.

Sýningin er fyrir hvolpa á aldrinum 3-9 mánaða og keppt verður í tveimur flokkum: 3-6 mánaða og 6-9 mánaða. 

Allir hvolpar fá skriflega umsögn ásamt því að bestu hvolpar tegundar og sýningar fá fallega rósettu.

Skráning er opin og fer fram í gegnum www.hundavefur.is. Skráningu lýkur mánudaginn 14. október kl. 15.00. Skráning kostar 3.900 kr.

Sýningin er skemmtileg æfing fyrir hvolpa, sýnendur og dómara! Vonumst til að sjá sem flesta!