Hvolpasýning 27. janúar

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Við byrjum sýningarárið af krafti! HRFÍ heldur hvolpasýningu fyrir allar tegundir í samstarfi við félag sýningadómara HRFÍ, laugardaginn 27. janúar í húsnæði HRFÍ að Melabraut 17.

Sýningin er fyrir hvolpa á aldrinum 3-9 mánaða og keppt verður í tveimur flokkum: 3-6 mánaða og 6-9 mánaða. Ef skráning verður mikil þá gæti verið að sýningunni verði skipt í tvennt með þeim hæti að 3-6 mánaða hvolpar yrðu á laugardag, og 6-9 mánaða á sunnudag.

Allir hvolpar fá skriflega umsögn ásamt því að bestu hvolpar tegundar og sýningar fá fallega rósettu.

Skráningu á www.hundavefur.is lýkur fimmtudaginn 18. janúar kl. 15.00. Skráning kostar 3.900 kr. Sýningin er skemmtileg æfing fyrir hvolpa, sýnendur og dómara! Vonumst til að sjá sem flesta!