Dagur íslenska fjárhundsins 18. júlí 2026
|
|
Time to read 0 min
|
|
Time to read 0 min
Laugardaginn 18. júlí n.k. verður Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur í ellefta sinn. Eigendur íslenskra fjárhunda munu að venju koma saman í stærri og smærri hópum og njóta dagsins með ferfættum vinum sínum.
Sú hefð hefur skapast að Árbæjarsafn veitir völdum íslenskum fjárhundum undanþágu til að heimsækja safnið og gefa gestum þess kost á að kynnast tegundinni. Dagskráin á Árbæjarsafni verður í senn formleg og óformleg, hún hefst klukkan 13 og henni lýkur klukkan 16. Gestir og gangandi geta heilsað upp á hunda og eigendur sem verða á rölti um safnið en auk þess verða sýndar æfingar sem reyna á skynfæri hundsins og vinnugleði. Dýralæknir verður á safninu sem mun meðal annars sýna hvernig heilsufarsskoðun fer fram og svara spurningum. Lesnar verða sögur úr sveitinni sem tengjast íslenska fjárhundinum og ennfremur verða á svæðinu hundar sem þjálfaðir hafa verið til að hlusta á börn lesa upphátt.
Sem og áður verður einnig dagskrá á netinu til að gefa fjölmörgum erlendum unnendum tegundarinnar kost á því að koma að því að gera daginn fræðandi og skemmtilegan. Dagskránni verður streymt á Facebook síðunni Dagur íslenska fjárhundsins, hér.
Dagskrá á Árbæjarsafni:
