Augnskoðun í október - Hafnarfirði

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Síðasta augnskoðun ársins 2024 fer fram dagana 24.-26. október á Melabraut 17, 220 Hafnarfirði. Pia Bjerre Pedersen og Susanne Mølgaard Kaarsholm frá Danmörku munu skoða í þessari skoðun.

Bókanir í augnskoðun fara í eingöngu í gegnum Hundavef, ekki er tekið við skráningum á skrifstofu. Í skráningunni sér fólk hvaða tímar eru lausir og bókar hund í ákveðinn tíma. Greitt er fyrir tímann við bókun í gegnum Hundavef, ekki er tekið við millifærslum og er skráning í augnskoðun ekki staðfest fyrr en búið er að klára greiðslu. Augnskoðun kostar 11.500 kr. fyrir virka félagsmenn, en 27.390 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Athugið, takmarkað pláss er í boði í hverja skoðun. Ekki er hægt að breyta bókun nema hafa samband við skrifstofu, ekki verður hægt að breyta tímum eða fá endurgreitt eftir 16. október. Ekki fæst endurgreitt ef ekki er mætt í bókaðan tíma. Lokað verður fyrir skráningu viku fyrir skoðun, eða fyrr ef tímar verða uppbókaðir. 

Hér má finna leiðbeiningar hvernig skráning fer fram í gegnum Hundavef: Leiðbeiningar við skráningu í augnskoðun