Augnskoðun í febrúar - degi bætt við

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Vegna mikillar eftirspurnar hefur einum degi verið bætt við augnskoðunina í febrúar, miðvikudeginum 7. febrúar. Skoðunin fer fram í húsnæði félagsins, Melabraut 17, 220 Hafnarfirði. Jens Kai Knudsen og Susanne Mølgaard Kaarsholm frá Danmörku munu skoða í þessari skoðun. 

Nú er einingis tekið við skráningum í gegnum vefverslun HRFÍ þar sem skrá þarf inn upplýsingar um eiganda ásamt ættbókarnafni og númer hunds sem er verið að skrá. Í skráningunni sér fólk hvaða tímar eru lausir og hversu mörg pláss eru í hvern tíma. Greitt er fyrir tímann við bókun (ekki með millifærslu). Bókun í augnskoðun fer fram hér. Augnskoðun kostar 11.500 kr. fyrir virka félagsmenn. Athugið, takmarkað pláss er í boði í hverja skoðun.