Augnskoðun á Melabraut - Tímar og upplýsingar

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

 

Augnskoðun félagsins hefst á morgun, miðvikudaginn 7. febrúar, og eru fyrstu tímarnir kl. 8:30. Stútfullt er í augnskoðunina og biðjum við fólk að virða tímana sem það á bókað og mæta í réttan tíma með réttan hund, það einfaldar og flýtir fyrir allri vinnu. Hér fyrir neðan má sjá hvaða hundur á hvaða tíma, einnig ættu allir að hafa fengið staðfestingar póst við bókun. 

Tímar miðvikudaginn 7. febrúar

Tímar fimmtudaginn 8. febrúar

Tímar föstudaginn 9. febrúar

Tímar laugardaginn 10. febrúar

ATH. ekki er í boði að mæta með hund sem er ekki skráður eða skipta um hund í skoðun, hundar sem eru ekki skráðir fá ekki skoðun. 

Skoðunin fer fram í húsnæði félagsins á Melabraut 17, 220 Hafnarfirði - gengið er inn Suðurbrautar megin. Vinsamlegast passið að leggja í lögleg bílastæði og ekki er ásættanlegt að lagt sé hjá Danco á virkum dögum. Bílar sem lagðir eru ólöglega verða dregnir í burtu á kostnað eiganda.