Aðalfundur 27. maí
|
|
Time to read 2 min
|
|
Time to read 2 min
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands var haldinn í gær, þann 27. maí, í húsnæði félagsins að Melabraut 17.
Í upphafi fundar minntust fundargestir Guðrúnar R. Guðjohnsen, heiðursfélaga og fyrrum formanns, með mínútu þögn, en Guðrún féll frá þann 13. maí s.l.
Ársskýrsla stjórnar og ársreikningar voru kynntir og samþykktir. Þá var starfs-og fjárhagsáætlun stjórnar samþykkt fyrir næsta starfsár.
Sjálfkjörið var í stjórn að þessu sinni þar sem þrír aðilar buðu sig fram í þrjú sæti, þær Anna Þórunn Björnsdóttir og Lilja Dóra Halldórsdóttir í aðalstjórn og varamaður þeirra Ásta María Guðbergsdóttir. Elín Edda Alexandersdóttir lauk sinni stjórnarsetu og vill stjórn þakka henni kærlega fyrir gott samstarf og framlag til stjórnar félagsins.

Lagðar voru fram lagabreytingar í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn fjallaði um innleiðingu á févíti (sekta) í viðurlagakafla laga félagsins, en aðalfundur 2025 lýsti vilja til að unnið yrði að slíkum tillögum og þær lagðar fram. Stjórn var ekki fylgjandi úrræðinu af ýmsum ástæðum sem ræddar voru á fundinum og vildi skoða aðrar leiðir til að hvetja félagsmenn til að fylgja betur lágmarksreglum um ræktun. Hún benti á að t.d. mætti setja skýrari reglur um skráningu í ættbók, þ.a.m. hvenær skráningu er frestað, hvenær hún fer fram gegn e.t.v. hærra gjaldi og hvenær hún kemur alls ekki til greina.
Þannig mætti skoða hvort taka eigi upp stigvaxandi skráningagjöld í tilteknum tilvikum, líkt og finna má í Finnlandi og að hluta í Noregi. Slík gjaldtaka væri þá ekki skilgreind sem févíti, heldur gjaldtaka vegna skráningar í ættbók.
Þá hefur stjórn rætt um endurskoðun reglna um skráningu í ættbók sem fælu í sér ákveðnari afstöðu gagnvart alvarlegri brotum.
Var þessi fyrri huti lagabreytinga felldur með öllum greiddum atkvæðum.
Síðari hluti lagabreytinga snérist aðallega um tilfærslur og minniháttar lagfæringar, auk efnisbreytinga í siðanefndarkafla er lýtur m.a. að því að heimila skrifstofu að ljúka enföldum málum með sátt, þótt um annað brot sé að ræða (var áður einungis fyrsta brot).
Síðari hluti lagabreytinga var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
Hinrik Gunnarsson hjá Advant endurskoðun var endurkjörinn endurskoðandi félagsins.
Stefanía Björgvinsdóttir var sjálfkjörin í siðanefnd til þriggja ára og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir varamaður.
Undir önnur mál ræddi stjórn hugmyndir að breytingum á reglum um skráningu í ættbók og grundvallarreglum fyrir félagsmenn, er miða að því að neita skráningu á gotum þar sem heilsu og velferð tíka og hvolpa er stefnt í alvarlega hættu. Þar undir myndu falla got þar sem tík er pöruð undir 18 mánaða aldri (sem er bannað samkvæmt dýravelferðarreglum), mikil skyldleikaræktun, ss. pörun afkvæmis við foreldri eða systkinapörun, og pörun tveggja arfbera alvarlegra sjúkdóma sem er skilgreind bönnuð í reglum félagsins.
Góðar umræður urðu undir liðnum og var almenn samstaða um það að þetta væru þarfar breytingar. Stjórn mun skoða regluverk systurfélaga í NKU í framhaldinu og nýtt regluverk Evrópusambandins, en bent var á að þar væri tekið hart á aldri ræktunartíka og mikilli skyldleikaræktun, auk þess sem frekari mótun þeirra reglna mun fara fram á næstu misserum, sem fylgjast þarf með.
Að lokum þakkaði formaður félagsins fundarstjóra og fundarmönnum fyrir góðan fund.
Fundargerð fundarins verður birt á næstunni.