Ársfundur Svæðafélags Norðurlands

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Ársfundur Svæðafélags HRFÍ á Norðurlandi verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 20. Fundurinn fer fram í húsnæði Búts, Njarðarnesi 9, Akureyri.

Dagskrá ársfundar verður sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og skipan ritara.
  2. Ársreikningar og skýrsla stjórnar lagðir fram til staðfestingar.
  3. Kosning stjórnarmanna og varamanna
  4. Veiðipróf fyrir standandi fuglahunda
  5. Hlýðnipróf
  6. Önnur mál sem stjórn svæðafélags hefur vísað til aðalfundar eða félagið hefur sent stjórninni til umfjöllunar á aðalfundi. Tilkynning um þess háttar mál skal vera skrifleg og hafa borist stjórninni í síðasta lagi tveimur vikum fyrir fundinn.

Hvetjum félagsmenn til að mæta og láta sig mál hundanna okkar varða. Einnig hvetjum við fólk til að koma og bjóða sig fram til að starfa með okkur í þeim verkefnum sem svæðafélagið sinnir ár hvert. Stjórn svæðafélagsins heldur utan um augnskoðanir á vegum HRFÍ 1x ári, sýningaþjálfanir, hlýðnipróf 1x á ári og veiðipróf fyrir standandi fuglahunda.

Við viljum vekja athygli á því að í vinnuprófum (hlýðni, rallý og spor) geta allir hundar tekið þátt óháð því hvort þeir eru ættbókafærðir eða ekki.

Með góðum kveðjum og von um að sjá sem flesta.

Stjórn Svæðafélags HRFÍ á Norðurlandi.