Ársfundur mjóhundadeildar

Written by: Ágústa Pétursdóttir

|

|

Time to read 1 min

Mjóhundadeild boðar til nýs ársfundar fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00-19:00 í húsnæði HRFÍ að Melabraut 17.
Fundurinn er boðaður vegna ólögmætrar kosningar í stjórn deildarinnar á ársfundi sem haldinn var mánudaginn 2. mars. Á þeim fundi voru ekki allir frambjóðendur og fundargestir kjörgengir og/eða með kosningarétt.
Dagskrá fundar:
1. Árskýrsla
2. Kosning í stjórn deildarinnar
Kjósa skal tvo aðalmenn í stjórn og tvo varamenn.
Anna Dís og Berglind Ósk hafa sagt sig frá störfum og því vantar fjóra nýja fulltrúa í stjórn Mjóhundadeildar.
Einungis þeir sem eru skráðir eigendur mjóhunda, eða hafa verið skráðir eigendur mjóhunda í viðkomandi deild síðastliðin tvö ár, og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn, geta gefið kost á sér til stjórnar Mjóhundadeildar HRFÍ.
Þeir sem óska eftir að bjóða sig fram til stjórnar eru beðnir um að senda tölvupóst á mjohundar@gmail.com eigi síðar en kl. 12:00 að hádegi fimmtudaginn 12. mars.
Nú þegar hafa þrír gefið kost á sér til stjórnar.
Úr reglum HRFÍ:
„Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur sem þau greiða félagsgjald sem hjón eða hvort í sínu lagi, sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann.“