Ársfundur PMF deildar HRFÍ

Written by: Ágústa Pétursdóttir

|

|

Time to read 0 min

Ársfundur PMF deildar HRFÍ
Ársfundur PMF deildar HRFÍ verður haldinn fimmtudaginn 27. mars 2025 kl. 20:00 í húsnæði Hundaræktarfélags Íslands, Melabraut 17, 220 Hafnarfirði.
Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
  3. Kosning til stjórnar: 2 sæti laus til tveggja ára.
  4. Kosning tengiliða
  5. Kosning í nefndir
  6. Önnur mál

Við vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn PMF deildar

“Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.”