Ársfundur Mjóhundadeildar

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Ársfundur Mjóhundadeildar verður haldinn sunnudaginn 11. febrúar í fundarherberginu að Melabraut 17 kl. 13:00.

Dagskrá

  1. Kosning fundastjóra og ritara
  2. Farið yfir ársskýrslu og ársreikning 2023
  3. Kosið til stjórnar, 2 sæti laus til tveggja ára (ritari og varamaður) 
  4. Önnur mál
  5. Heiðrun stigahæstu hunda 2023

Áhugasamir um stjórnarsæti endilega sendið á mjohundar@gmail.com

Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.

Hlökkum til að sjá ykkur 

með kveðju stjórn Mjóhundadeildar