Ársfundur Grefil- og sporhundadeildar

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Grefil- og Sporhundadeild boðar til nýs ársfundar mánudaginn 3. Mars 2025 kl. 20:00 í húsnæði HRFÍ að Melabraut 17, vegna ólögmætra kosninga í stjórn deildarinnar á ársfundum sem haldnir voru 22.02.2024 og 6.2.2025. Á fundinum sem haldinn var 22.02.2024 var notuð netkosning sem er ekki lögleg. Og á fundinum 06.02.2025 voru ekki allir á fundinum gjaldgengir til kosninga.

Dagskrá fundar:

  • Kosning í stjórn deildarinnar
  • alls 5 sæti laus, 3 sæti til tveggja ára 2 sæti til eins árs.

Einungis þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og eru skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn, geta gefið kost á sér í stjórn ræktunardeildar.

Úr reglum HRFÍ:

Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni. Á fyrsta fundi eftir ársfund skal stjórn velja sér formann.