Ársfundur Fuglahundadeildar
Ársfundur Fuglahundadeildar verður haldinn miðvikudaginn 18. febrúar í fundarherbergi HRFÍ að Melabraut 17 kl. 20:00.
Dagskrá
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Skýrsla stjórnar og ársreikningur
- Kosning til stjórnar: 2 sæti laus til tveggja ára
- Kosning tengiliða fyrir tegundir
- Önnur mál
Við minnum á breyttar reglur um kosningarrétt og kjörgengi sem tók gildi í fyrra en "Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í deildinni og eru með greitt félagsgjald."
Hlökkum til að sjá sem flesta af okkar deildarmeðlimum
Stjórn FHD