Ársfundur Fjár – og hjarðhundadeildar 2024

Written by: Hundaræktarfélag Íslands

|

|

Time to read 0 min

Ársfundur deildarinnar verður haldinn í sal HRFÍ, Melabraut 17, 8.febrúar og hefst kl. 19.30.

Dagskrá:

  • Kosning fundarstjóra og ritara
  • Skýrslur tengiliða
  • Ársskýrsla stjórnar
  • Ársuppgjör frá gjaldkera
  • Kosningar tengiliða allra tegunda
  • Kosning stjórnarmeðlima. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára.
  • Önnur mál
  • Stigahæstu hundar deildarinnar heiðraðir

Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð fimm stjórnarmeðlimum og eru þeir kosnir til tveggja ára, tveir og þrír í senn. Kjósa þarf um þrjú sæti í stjórn Fjár – og hjarðhundadeildar. Elín Lára Sigurðardóttir og Jóhanna Eivinsdóttir látar af störfum eftir fjögurra ára setu í stjórn og Andrea Björk Hannesdóttir lætur af störfum eftir tveggja ára setu í stjórn. Stjórn óskar eftir framboðum frá félagsmönnum þeim er áhuga hafa á að starfa í stjórn deildar. Að vinna í slíkri sjálfboðavinnu er skemmtilegt, lærdómsríkt og fjölbreytt, og krefst þess að fólk geti unnið af trúmennsku í góðu samstarfi og lagt sitt af mörkum til að efla félagið og standa vörð um hagsmuni þess. Það er styrkur fyrir deildina að sem flestir gefi kost á sér og að þátttakendur séu með mismunandi sýn og reynslu. Áhugasamir frambjóðendur geta sent okkur póst á smalahundar@gmail.com. Heimasíða deildar er: www.smalar.net

Endilega hafið samband við stjórn á netfangið smalahundar@gmail.com ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Kveðja; Stjórn Fjár- og hjarðhundadeilda