Ársfundur Deildar íslenska fjárhundsins
Ársfundur Deildar íslenska fjárhundsins ásamt heiðrun stigahæstu hunda deildarinnar verður haldinn í Sólheimakoti, 271 Rvk. 10. mars nk. kl.19:30
Dagskrá fundar; Venjuleg aðalfundarstörf, stjórnarkjör og önnur mál.
Verið velkomin í Sólheimakot,
kveðja stjórnin.
“Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.”